Monday, September 06, 2010
..:: Starfsmannastefna ::..
 Fyrirtækið
  

 Almennt
 Print   

 Starfsmannastefna

Stjórnendur Forsvars ehf. vilja:

  • að starfsfólk sé ánægt með vinnustaðinn sinn og starfsumhverfi þess allt.
  • að samhugur, samstarf og gagnkvæm virðing ríki innan fyrirtækisins fyrir tilvist og skoðunum annarra, milli einstakra starfsmanna og milli starfsmanna og stjórnar.
  • að starfsfólk finni til öryggis vegna þess að það hefur innsýn í og áhrif á þróun vinnustaðarins og eigin starfsskilyrða. Að umboð og ábyrðarsvið starfsmanna og stjórnenda séu skýr. Skýrar og einfaldar reglur gildi um samskipti, boðleiðir og upplýsingastreymi milli starfsmanna, stjórnenda og viðskiptavina.
  • að starfsmenn fylgi þeim reglum sem gilda um vinnutíma, árangur og hátterni. Starfsmenn hlíti lögmætum fyrirmælum yfirmanna sinna, sýni ábyrgð, heiðarleika, trúmennsku og vandvirkni. Að gætt skuli þagmælsku og trúnaðar um atriði sem þeir verða áskynja í starfi hvort heldur er um málefni viðskiptavina eða fyrirtækisins.
  • að starfsmönnum verði skapaðar aðstæður til að samræma kröfur starfs- og fjölskylduábyrgðar eins og kostur er. Starfsmönnum verði gert kleift að minnka starfshlutfall tímabundið vegna fjölskylduaðstæðna, t.d. umönnun barna og sjúkra á heimilinu. Starfsmenn eigi kost á hlutastörfum og sveiganlegum vinnutíma eftir því sem aðstæður leyfa.
  • að stjórnendur tileinki sér góða og árangursríka stjórnunarhætti, hafi yfirsýn yfir verksvið sitt og samhæfi störf undirmanna sinna svo markmiðum fyrirtækisins verði náð með sem hagkvæmustum hætti. Stjórnendur leitist við að hafa samráð við starfsmenn um málefni fyrirtækisins og beiti sér fyrir sem víðtækastri sátt um stefnu og starfshætti. Starfsmannafundir fari fram mánaðarlega, til að bæta samskipti á vinnustað, upplýsa starfsfólk og stjórnendur, efla liðsheildina og fá góðar hugmyndir. Starfslýsingar skulu gerðar og formlega samþykktar af framkvæmdastjóra og viðkomandi starfsmanni. Starfsmannaviðtöl fari fram árlega þar sem starfsmaður og næsti yfirmaður fái tækifæri til að ræða störf og samskipti aðila svo sem vinnuframlag starfsmanns og möguleika hans á þróun í starfi til að auka starfsánægju og afköst.
  • að ráðið sé starfsfólk sem uppfyllir kröfur um fagþekkingu, verkkunnáttu, reynslu og persónulega eiginleika til að það geti leyst verkefni sín nú og í framtíðinni. Að jafnréttis sé gætt við ráðningar í störf, tilfærslur milli starfa og kjaraákvarðanir. Að tekið sé vel á móti nýju starfsfólki. Starfsfólk skuli frætt um vinnubrögð, starfsvenjur og starsfhætti á nýjum vinnustað. Gerðir skulu ráðningasamningar við alla starfsmenn við fastráðningar.
  • að laun taki mið af kröfum til starfsins, hæfni starfsmannsins og frammistöðu í starfi. Að launakjör laði að hæft starfsfólk og haldi því í starfi.
  • að sí- og endurmenntun starfsmanna og stjórnenda verði hluti af umbótastarfi innan fyrirtækisins svo og markmiðum um ánægju starfsmanna og viðskiptavina verði náð. Þannig sæki starfsmenn reglulega sí- og endurmenntun til að efla fagþekkingu sína í samræmi við síbreytilegar kröfur sem gerðar eru af viðskiptavinum.
  • að vinnuaðstaða, aðbúnaður og hollustuhættir á vinnustaðnum séu til fyrirmyndar.

Stjórnendur Forsvars ehf. trúa að ánægt starfsfólk:

  • sé stolt af fyrirtæki sínu og tali vel um það
  • leggi sig fram við að gera viðskiptavininn ánægðan
  • komi með góðar hugmyndir
  • geti náð hámarks árangri í störfum sínum
 Print   

 Helstu verkefni

Í bókhaldi
Rammasamningur við Ríkiskaup um endurskoðun og reiknishald. Bókhald og uppgjör fyrir einstaklinga og fyrirtæki.

Í hugbúnaði
Aðlögun Grósku að almennri félagsþjónustu sveitarfélaga.

Í skráningu
Skráning gagna í upplýsingakerfi fyrir Alþingi, Þjóðminjasafnið og Þjóðskjalasafnið.

Í bókhaldi
Rammasamningur við Ríkiskaup um endurskoðun og reiknishald. Bókhald og uppgjör fyrir einstaklinga og fyrirtæki.

Í hugbúnaði
Aðlögun Grósku að almennri félagsþjónustu sveitarfélaga.

Í skráningu
Skráning gagna í upplýsingakerfi fyrir Alþingi, Þjóðminjasafnið og Þjóðskjalasafnið.

  

©2003-2009 Forsvar ehf. Allur réttur áskilinn.
 
  Login