Forsvar ehf. var stofnað í desember 1999. Eigendur eru nokkrir einstaklingar, auk Húnaþings vestra, Byggðastofnunar og Hagfélagsins ehf.
Stjórn félagsins skipa Bjarni Þór Einarsson, formaður, Garðar Jónsson og Karl Sigurgeirsson. Framkvæmdastjóri er Elín R. Líndal.
Starfsemi Forsvars ehf er í tveimur deildum. Í hugbúnaðar-, þjónustu- og markaðsdeild annars vegar og bókhaldsdeild hins vegar. Forstöðumaður hugbúnaðardeildar er Einar Hjaltason og deildarstjóri bókhaldsdeildar er Unnur Gréta Haraldsdóttir.
- Viðskiptavinurinn er númer eitt
- Bjóðum liðlega og persónulega þjónustu
- Hlustum á óskir viðskiptavinarins og greinum þarfir hans
- Sýnum viðskiptavininum traust og stöndum við gefin loforð
- Bendum á valkosti og lausnir
- Sýnum frumkvæði
- Byggjum upp aðlaðandi og þægilegt umhverfi fyrir viðskiptavini og starfsfólk með:
- Góðri framkomu
- Virðingu gagnvart samstarfsfólki og viðskiptavinum
- Góðum anda á vinnustað
Við höfum ávallt í huga að við spilum í sama liðinu þar sem markmiðið er að uppfylla þarfir viðskiptavinarins.
Stefna Forsvars er að: Vera leiðandi fyrirtæki á sviði bókhalds, hugbúnaðargerðar, fjarvinnslu, umboða og rekstrarráðgjafar í Húnaþingi vestra, líta á landið í heild sem markaðssvæði fyrirtækisins og tryggja viðskiptavinum þjónustu sem uppfyllir þarfir þeirra og væntingar.